Náðu í . . .
þrautir með fyrirmælum eins og:
Hlauptu hringinn í kringum tré og teldu upp að tíu. Finndu eitthvað sem minnir á fuglana. Stattu á einum fæti og galaðu eins og hani.

nadu_i_1_3_bekkur.pdf | |
File Size: | 93 kb |
File Type: |
Stafavinna 2. - 3. bekkur
Nemendur fá stafrófið í hendurnar ( ljósrit ) og finna hluti í nærumhverfinu sem hafa sama upphafsstafi og eru á ljósriti. Nemendur skrá nafn hluta, dýra, jurta og annað sem þeir sjá og finna. Nemendur finni ákveðinn fjölda að ósk kennara.

stafaspjald.pdf | |
File Size: | 99 kb |
File Type: |
Minnisleikur í skóginum
Þessi leikur hentar vel að hausti. Hann er vel til þess fallinn að fá börnin til að skoða smáhlutina í skóginum og nefna þá með nafni.
Þú þarft 2-6 klúta eða dúka helst einlita, ca 1m².
Lýsing
Leggið klút á jörðina. Safnið saman nokkrum hlutum úr skóginum s.s. laufi, stráum, trjágreinum eða könglum og setjið undir klútinn. Leyfið börnunum að horfa á þá stutta stund (t.d. 30 sek) og breiðið klútinn aftur yfir. Börnin eiga síðan að fara og finna sams konar hluti.
Þennan leik geta börnin líka leikið í litlum hópum t.d. þannig að einn leggur hlutina undir klútinn og hinir leita eða segja hvaða hluti þeir sáu.
Önnur útgáfa af þessum leik er að skipta bekknum í 4-5 hópa. Hver hópur safnar 5-10 hlutum sem hann leggur á dúk eða klút.
Hóparnir skipta síðan um pláss og eiga nú að finna alveg eins hluti og þá sem fyrir eru á „nýja“ dúknum.

minnisleikur__skginum_1_3_bekkur.pdf | |
File Size: | 92 kb |
File Type: |