Stafavinna
Nemendur
finna hluti í skógi og búa til stafi með þeim hlutum.
Gögn: Greinar, könglar, rusl og annað sem finnst í skógi.
Kennari sendir nemendur inní skóg í efnisleit. Nemendur mynda svo þá stafi sem unnið er með á jörðina. Hugsanlega er svo hægt að búa til orð eða setningar í framhaldinu.

stafavinna_1_bekkur.pdf | |
File Size: | 169 kb |
File Type: |
Minniskeikur í skóginum
Þessi leikur hentar vel að
hausti. Hann er vel til þess fallinn að fá börnin til að skoða smáhlutina í
skóginum og nefna þá með nafni.
Gögn: 2-6 klútar eða dúkar helst einlitir, ca 1m².
Leggið klút á jörðina. Safnið saman nokkrum hlutum úr skóginum s.s. laufi, stráum, trjágreinum eða könglum og setjið undir klútinn. Leyfið börnunum að horfa á þá stutta stund (t.d. 30 sek) og breiðið klútinn aftur yfir. Börnin eiga síðan að fara og finna sams konar hluti.
Þennan leik geta börnin líka leikið í litlum hópum t.d. þannig að einn leggur hlutina undir klútinn og hinir leita eða segja hvaða hluti þeir sáu.
Önnur útgáfa af þessum leik er að skipta bekknum í 4-5 hópa. Hver hópur safnar 5-10 hlutum sem hann leggur á dúk eða klút.
Hóparnir skipta síðan um pláss og eiga nú að finna alveg eins hluti og þá sem fyrir eru á „nýja“ dúknum.

minnisleikur__skginum_1_3_bekkur.pdf | |
File Size: | 92 kb |
File Type: |
1. – 4. bekkur
Náttúrubingó
Gögn: Bingóstjórinn safnar 10-20 hlutum (náttúrufyrirbærum) fyrir framan sig.
Hver þátttakandi finnur í umhverfinu 5-12 af þeim hlutum sem bingóstjórinn hefur. Þátttakendur setjast í stóran hring umhverfis bingóstjórann, snúa bakinu í hann og raða sínum bingóhlutum ( náttúrufyrirbærum) fyrir framan sig. Bingóstjórinn les svo upp einn hlut í einu og ef þátttakandi hefur þann hlut fyrir framan sig má hann leggja hann til hliðar eða taka hann frá. Þegar einhver þátttakendanna hefur tekið alla sína hluti frá má hann kalla BINGÓ!

Vasaljósaganga
Gögn: vasaljós, smásaga og nesti.
Nemendur fara út með vasaljós út í skógarlund í myrkri. Kennari les smásögu fyrir nemendur í myrkrinu og nemendur borða nesti. Gaman að leika sér með ljós og skugga.