Blindingjaleikur.
Markmið:
Að efla vináttu og traust nemenda innan hópsins (bekkjarins). Gögn: Treflar eða e-ð til að hylja augun. Leiklýsing: Nemendum er skipt upp í pör (tveir saman). Annar leikur blindan en hinn er leiðsögumaður. Það má ekki tala í leiknum. Einu samskiptin eru snerting lófa þannig að blindinginn leggur lófa hægri handar ofan á hægri lófa leiðsögumannsins. Leiðsögumaðurinn stjórnar ferðum þeirra með ákveðnum hreyfingum: Að ýta lófa upp merkir að nú fari þeir upp. Að lækka lófann þýðir að nú fari þeir niður, t.d. skríða. Að draga lófann að sér, þýðir að nú á að fara áfram. Nauðsynlegt er að sýna nem. hvað um er að ræða og brýna fyrir þeim að fara varlega. Athugasemdir Nemendur þurfa að þekkjast nokkuð vel áður en farið er í leikinn.Gott er að hafa umræður í lokin um líðan nemenda í leiknum. Einnig má láta nemendur sjálfa finna ákveðin tákn til tjáskipta. |
|
bnbnc
gjgvnvbnvbn