Náttúrufræði
4.- 5. bekkur
Fjölbreytni trjátegunda
Markmið: Að nemendur þekki einkenni nokkurra trjátegunda og öðlist betri umhverfisvitund.
Gögn: Blýantur, blað, trjábækur (má sleppa).
Verkefni: Hvað heldur þú að séu margar trjátegundir í lundinum? Finndu eins margar ólíkar trjátegundir og þú getur og teiknaðu/rissaðu upp
Lýstu helstu einkennum (hvernig laufblöð eru í laginu (ílöng/breið), hvernig brúnir laufblaðanna eru (slétt/skörðótt), hvernig yfirborð laufblaðanna er (matt/gljáandi/loðið), hvernig greinarnar skiptast út frá trjástofninum
Er mismunandi lykt af laufblöðunum?
Er hægt að þekkja trjátegund á lyktinni?
Hvað þarf að gera til að finna sem sterkasta lykt af hverri trjátegund?
Gott að skipta í hópa í þessu verkefni.
Náttúrufræði
4.-5. bekkur
Paddan mín
Markmið: Fjölbreytni skordýra, einkenni þeirra og komist í snertingu við náttúruna
Gögn: Skráningarblað, blýantur, ílát undir pöddur (t.d. glerkrukkur / krukkulok)
Pödduveiði: sproti klipptur af trjágrein / steini velt við / svörðurinn skoðaður / padda veidd í felligildru (t.d. niðurgrafna glerkrukku sem pöddur eiga erfitt með að komast upp úr).
Hver einstök padda er skoðuð með Ipad (aðdráttur notaður til að stækka mynd pöddunnar sem mest) og því sem sést er varpað upp á sýningartjald.
Pöddur eru „svæfðar“ og skoðaðar í smásjá.

Verkefni: Hægt er að vinna þetta verkefni tveir og tveir saman eða sem einstaklingsverkefni. Hægt nota þetta verkefni sem kveikju á stærra verkefni
Náttúrufræði
4.-5. bekkur
Markmið: Bein tengsl mannsins við náttúruna: erum við hluti af náttúrunni?
Gögn: Skráningarblað og blýantur. Nafnabók (ekki nauðsynleg).
Verkefni: Skrá niður mannanöfn sem tengd eru náttúrunni og flokka þau í kvenmannsnöfn og karlmannsnöfn.
· Finndu 2 karlmannsnöfn og 1 kvenmannsnafn sem dregin eru af trjátegundum
· Finndu 2 karlmannsnöfn og 1 kvenmannsnafn sem dregin eru af fuglategundum
· Finndu 3 kvenmannsnöfn sem dregin eru af blómaheitum
Getur verið að fleiri kvenmannsnöfn en karlmannsnöfn séu dregin af blómaheitum? Hvernig fuglum eru karlmannsnöfnin/kvenmannsnöfnin dregin af? Af hverju gæti þetta stafað?
Náttúrufræði
4.-5. bekkur
Gögn: Blýantur og hvít blöð
Verkefni: Mismundandi áferð náttúrulegra fyrirbrigða fest á blað
· Finndu 8 náttúruleg fyrirbrigði með mismunandi yfirborði – sem hægt er að ná „skuggamynd“ af með blýanti og hvítu blaði. Safnaðu saman á blaðið þitt þessum 8 mismunandi áferðum.
Liðakeppni: Skiptið hópnum í lið og hafið keppni milli liða, hver finnur flestar áferðir.
Getraun: Skiptið í lið og látið liðin finna ákveðinn fjölda af áferðum. Hin liðin eiga síðan að giska hverjar áferðirnar eru.

- Finndu skordýr: hvar er best að leita að skordýrum? Eru mismunandi tegundir af skordýrum í mismunandi umhverfi? (undir steinum/í vatni/undir laufblöðum/í loftinu/á jörðinni/í jörðinni)
- Skoðaðu skordýrið vel og fylltu út upplýsingar sem þarf á pödduskráningarblaðið. Mundu að teiknaðu mynd af skordýrinu og lita
- Berðu saman þitt skordýr við skordýr bekkjarfélaga. Hvað er líkt og hvað er ólíkt?
- Haltu kynningu á pöddunni þinni fyrir bekkjarfélaga: hvernig paddan þín kemur sér á milli staða, á hverju hún lifir, hvernig tekur hún fæðuna til sín, hvað margir fætur og/eða vængir eru á henni. Er þetta ljót eða falleg padda? Af hverju finnst þér paddan þín ljót – eða falleg?