Hlutföll
Gögn: Blað, blýantur, reglustika.
Verkefni: Veldu þér hús og veltu fyrir þér hlutföllunum í því. Teiknaðu það upp eins nákvæmt og þú getur og litaðu í réttum litum. Hafðu nærumhverfi hússins með eins og garð, gróður, grindverk oþh.
Markmið: Að gera sér grein fyrir þrívídd og hlutföllum.
Hlutföll
Gögn: Blað, blýantur
Verkefni: Finndu fánastöng með fána. Teiknaðu á blað eins nákvæmt og þú getur. Finndu hlutföllin í fánanum og finndu líka út hve mörg % fáninn nær á fánastönginni eða hversu stórt svæði hann nær af fánastönginni og skráðu það í almennum brotum
Markmið: Að gera sér betur grein fyrir hlutföllum, prósentum og almennum brotum.
Horn og gráður
Gögn: Blað, blýantur, gráðubogi, reglustika
Verkefni: Finnið hluti í náttúrunni og umhverfinu sem hafa horn. Finnið a.m.k. 3 hluti sem hafa rétt horn, gleið horn og hvöss horn. Veldu eitt horn úr hverjum flokki og teiknaðu á blaðið þitt og útskýrðu hvar þú fannst það og hversu stórt hornið er
Markmið: Að átta sig á mismunandi hornum í umhverfi sínu og öðlast betri þjálfun í að mæla horn
Form og litir, umhverfisbingó
Gögn: Blað og blýantur
Verkefni: Nemendur eiga að finna mismunandi hluti í náttúrunni sem hafa ákveðin form, liti eða einkenni. Þeir merkja við á Bingóspjald annað hvort með því að færa kennara hlutinn og krossa í reitinn, lýsa hlutnum með orðum eða teikna. Sá sem fyrstur er að finna alla þá hluti sem taldir eru upp á listanum vinnur Bingóið. Auðvelt að gera þetta verkefni sem hópverkefni
Markmið: Að finna form og liti í náttúrunni og átta sig á fjölbreytileika náttúrunnar
utikennsla_6-7_fylgiskjal_umhverfisbingo.pdf | |
File Size: | 169 kb |
File Type: |