Frumform
Viðfangsefni: Frumformin þrjú; þríhyrningur, ferhyrningur og hringur.
Aldur: Yngsta stig.
Árstími: Allar árstíðir koma til greina en haustið er einna ákjósanlegasti tíminn þar sem úrvalið af efniviði er hvað fjölbreyttast þá.
Námsgreinar: stærðfræði, listgreinar (myndmennt), lífsleikni, og náttúrufræði.
Tími: Að lágmarki 3 kennslustundir, fer eftir umfangi undirbúnings og úrvinnslu.
Umhverfi: Nærumhverfi skóla (til dæmis trjálundir, valllendi við ár eða læki, fjara, lystigarðar, leikvellir, moldarbörð, ýmsar flatir, möl fyrir utan skóla eða sandkassi).
Markmið:
Að nemendur:
Stutt lýsing:
Frumformin þrjú; ferhyrningur, þríhyrningur og hringur eru kynnt fyrir nemendum. Því næst er haldið út í náttúruna þar sem myndsköpun fer fram.
Gögn:
Ýmsir hlutir þar sem lögun frumformanna kemur fram, flettitafla, túss, blöð, litir, stafræn myndavél, efniviður náttúrunnar og hvaðeina sem finna má á því svæði þar sem vinnan fer fram (til dæmis steinar, greinar, sandur, mold, laufblöð, blóm, gras og sinustrá). Ásamt þessu er mjög gott að hafa hrífur, skóflur, kústa og nettar trjáklippur til hjálpar við gerð nemendaverkefnanna.
Framkvæmd:
Undirbúningur/kveikja: Hentugt er að kynna frumformin þrjú; ferhyrning, þríhyrning og hring í stærðfræðitíma. Þessi form geta verið með ýmsu móti og er kennara í frjálst vald sett hvaða gögn hann kemur með í tíma og velur til sýningar. Nemendur eru spurðir hvort þeir viti hvaða form þetta eru. Næst eru þeir spurðir á hvað þessi form minni þá og hvort þeir geti gefið dæmi um eitthvað úr umhverfinu sem hafi þessa lögun. Ágætt er að skrifa upp á töflu, til dæmis flettitöflu, þau dæmi sem nemendur nefna og flokka þau niður í frumformin þrjú með hjálp nemenda til þess að sjá sameiginleg einkenni þeirra. Nemendur æfa sig svo í að teikna þessi form og fá þannig meiri tilfinningu fyrir þeim áður en haldið er út í náttúruna til verklegrar myndsköpunar.
Á vettvangi: Bekknum er skipt niður í þriggja manna hópa sem í sameiningu eiga að finna sér efnivið úti í náttúrunni og vinna verk þar sem frumformin eru höfð í huga. Sá staður sem unnið verður á er fyrirfram ákveðinn af kennara og þangað halda allir með þau verkfæri sem þarf til myndsköpunarinnar. Nemendur fá nú lausan tauminn og vinna saman í hópum að sínum verkefnum. Kennarinn fer á milli og leiðbeinir ef þörf er á. Oft er nóg að fylgjast með úr fjarlægð og lofa nemendum að skapa sínar eigin hugmyndir og þar með fá frelsi til að láta hönd og hugmyndir ráða verki. Kennari skal varast að vera of leiðandi, heldur aðeins spyrja opinna spurninga þar sem nemendur þurfa sjálfir að brjóta heilann og finna sínar leiðir að takmarkinu sem er að hafa eitt eða fleiri frumform í verkum sínum.
Úrvinnsla og ígrundun: Nemendur safnast saman þegar kennari kallar til þeirra. Næst er gengið á milli verka og nemendur segja frá því sem þeir voru að skapa og kynna verkið fyrir samnemendum sínum. Kennari spyr einnig spurninga á borð við: Hvernig gekk? Hvaða efnivið notið þið í listaverkinu? Komu upp einhver vandamál við vinnuna? Hvernig gekk að leysa þau? Þannig fær hann nemendur hvers hóps til að ígrunda það verk sem þeir unnu að saman úti í náttúrunni.

- öðlist þjálfun í notkun frumformanna þriggja; þríhyrnings, ferhyrnings og hrings
- skoði form í nánasta umhverfi sínu
- kynnist fjölbreyttum efniviði sem nota má á ýmsan hátt
- læri að skapa listaverk úti í náttúrunni
- fái tilfinningu fyrir efniviði náttúrunnar og þeim fjölbreytileika sem bæði náttúran og efniviðurinn hafa upp á að bjóða
- þjálfist í hópvinnu þar sem lýðræðislega samskipti ríkja
- njóti og upplifi fagurfræðina sem fylgir myndsköpun