Umhverfisstefna Ingunnarskóla
Ingunnarskóli er grænfánaskóli og í umhverfissáttmála skólans er lögð áhersla á að starfsfólk og nemendur sýni umhverfinu virðingu, ábyrgð og vinsemd svo að okkur líði vel og börnin okkar eigi bjarta framtíð. Það gerum við meðal annars með því að allir kynnist og þekki nánasta umhverfi skólans og þeim fjölmörgu þáttum sem það býður uppá. Í skólanum er lögð áhersla á endurvinnslu og flokkun á rusli og reynt að draga úr rafmagnsnotkun eins og hægt er. Útnefndir eru umhverfisvinir sem hjálpa öllum að bera virðingu fyrir umhverfinu og fylgjast með að umhverfissáttmálanum sé framfylgt.
Í skólanum er boðið upp á hollan heimilismat í hádeginu og er þá ávallt boðið upp á grænmeti og eða ávexti með matnum. Nemendum gefst kostur á að fá hafragraut að kostnaðarlausu í upphafi skóladags og eru margir sem nýta sér það. Einungis er boðið upp á vatn og mjólk með hádegismatnum og ekki er heimilt að taka fernudrykki í skólann. Nemendur eru hvattir til að taka með sér holt nesti í morgunhressingu, s.s. ávexti og grænmeti og ekki er heimilt að taka með sætabrauð.
Áhersla er á útikennslu og daglega hreyfingu í kennslustundum þar sem nemendur fá tækifæri til að hreyfa sig jafnt úti sem inni. Nemendur í 1.-7. bekk fara tvisvar sinnum á dag í frímínútur utandyra og eru þá hvattir til að hreyfa sig og leika sér. Nemendur í 6.-7. bekk sinna sérstöku verkefni í frímínútum sem kallast skólavinir og gengur út á það að virkja yngri nemendur og aðstoða í leikjum. Öflug íþróttakennsla er við skólann og er áhersla á íþróttir utandyra í upphafi og lok skólaársins.
Vorið 2014 fékk skólinn afhentan Grænfánann í þriðja sinn.

Umhverfissáttmáli Ingunnarskóla
Starfsfólk og nemendur Ingunnarskóla vilja sýna umhverfinu virðingu, ábyrgð og vinsemd svo að okkur líði vel og börnin okkar eigi bjarta framtíð.
Það gerum við meðal annars með því að:
Allir í kynnist og þekki nánasta umhverfi skólans og þeim fjölmörgu þáttum sem það býður uppá.
Allir í skólanum taki þátt í endurvinnslu og flokkun á rusli.
Allir í skólanum reyni að draga úr rafmagnsnotkun eins og hægt er.
Allir í skólanum hugi að umgengni í skólanum jafnt utan dyra sem innan.
Útnefna umhverfisvini sem hjálpa öllum að bera virðingu fyrir umhverfinu og fylgjast með að umhverfissáttmálanum sé framfylgt.
Átthagar og landslag:
Nemendur öðlist þekkingu á náttúrufræði, landafræði og sögu Grafarholts, svo sem fuglalífi, gróðurfari og örnefnum.
Nemendur kynnist atvinnustarfsemi í hverfinu svo sem kirkjunni, dýraspítalanum, verslunum og þjónustu.
Flokkun og endurvinnsla:
Pappír → prenta báðum megin á blöð og nýta alla afganga vel og skila í endurvinnslu því sem ekki er hægt að nýta.
Bylgjupappi → safnað og skilað í endurvinnslu.
Plast → safna saman og nýta við verkefnavinnu eins og hægt er og skila í endurvinnslu því sem ekki er hægt að nýta.
Gler → safna saman og skila til endurvinnslu.
Kertavax → safna kertaafgöngum og búa til ný kerti.
Rafhlöður → nota helst hleðslurafhlöður en safna öðrum saman og skila til úrvinnslu.
Lífrænn úrgangur → safna saman og skila til úrvinnslu.
Málmar og tré → safna saman og nýta það sem hægt er en senda afganginn í endurvinnslu.
Rafmagnsnotkun:
Slökkva ljós þar sem enginn er.
Slökkva á rafmagnstækjum sem ekki eru í notkun.
Nýta dagsbirtu eins og hægt er.
Umgengni:
Allir hjálpast að við að ganga vel um skólahúsnæðið og skólalóð.
Nemendur skiptast á að hreinsa rusl af skólalóð.
Stefnum að því að bæta og fegra umhverfi okkar, bæði utandyra og innan.
Umhverfisvinir
Hvert svæði velur umhverfisvini sem eru fulltrúar svæðisins í umhverfisnefnd.
Þeir skiptast á að sitja fundi í umhverfisnefnd.
Þeir fræða aðra nemendur um umhverfisstefnu skólans.
Þeir fara reglulega um svæðin til að fylgjast með og benda á það sem vel er gert og hvað megi bæta.